Flautuhópurinn Viibra flytur verk eftir Þuríði Jónsdóttur, Björk Guðmundsdóttur, Berglindi Maríu Tómasdóttur, Hilmu Kristínu Sveinsdóttur og Pauline Oliveros, sunnudaginn 17. október í stofunni á Gljúfrasteini. Hópurinn hefur unnið náið saman við gerð plötu Bjarkar Guðmundsdóttur, Útópíu og á ýmsum tónleikaferðalögum í kjölfarið. Á efnisskránni verða tveir frumflutningar, nýjar útsetningar og önnur verk fyrir flautuhópa. Meðlimir Viibru eru: Áshildur Haraldsdóttir, Berglind María Tómasdóttir, Björg Brjánsdóttir, Dagný Marinósdóttir, Sólveig Magnúsdóttir, Steinunn Vala Pálsdóttir og Þuríður Jónsdóttir.
Miðar á tónleikana eru seldir samdægurs í safnbúðinni á Gljúfrasteini.
Efnisskrá:
Pauline Oliveros: Tuning Meditation
Þuríður Jónsdóttir: Refill
Berglind María Tómasdóttir: Tikk-tokk
- um eilíbbð og önnur hljóð á Gljúfrasteini
Hilma Kristín Sveinsdóttir: viiba
Björk: Overture